Landsbyggðir
Landsbyggðir
N4
#83 Sameining sveitarfélaga NE - Hilda Jana Gísladóttir, Hjalti Jóhannesson, Kristján Þór Magnússon og Svanfríður Jónasdóttir
28 minutes Posted Oct 2, 2019 at 8:57 am.
0:00
28:37
Download MP3
Show notes

Lagt er til að sveitarfélögum landsins fækki verulega á næstu árum. Í Landsbyggðum á N4 er kastljósinu beint sérstaklega að Norðurlandi eystra.

Hilda Jana Gísladóttir formaður Eyþings ogKristján Þór Magnússon varaformaður Eyþings ræða þessar tillögur, auk þess sem Svanfríður Jónasdóttir og Hjalti Jóhannesson fara yfir stöðu mála, en þau hafa fylgst með málefnum sveitarfélaga um langt árabil.

Þrír milljarðar í pottinum á Norðurlandi eystra

Líklega mun umræðan um sameiningu sveitarfélaga þyngjast á næstu misserum í kjölfar áforma um að lögbundið verði að lágmarksíbúafjöldi hvers sveitarfélags verði eittþúsund.

Gulrótin í sameiningarmálunum er án efa aðkoma Jöfnunarsjóðs, allt að 19 milljarðar, ef miðað er við landið allt.

Á Norðurlandi eystra eru í boði allt að 3 milljarðar króna.

Það má nú ýmislegt gera fyrir þann pening.