Show notes
„Mér finnst gríðarlega mikilvægt að landsbyggðirnar eigi fulltrúa á Alþingi. Umræðan um ferðakostnað þingmanna er að einhverju leiti villandi en aðhaldið frá almenningi er nauðsynlegt,“ segir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.
Hún er gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum að þessu sinni.
Umræðuefnið er meðal annars virðing Alþingis, byggðapólitík, menntamál, fiskeldi, frumkvöðlastarfsemi og ferðakostnaður þingmanna.

