Í þessum fyrsta þætti ársins bjóðum við velkomna Önnu Helgu Jónsdóttur dósent við Háskóla Íslands. Anna Helga lauk BS-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2003, meistaraprófi í hagnýtri stærðfræði frá Danska tækniháskólanum (DTU) í Kaupmannahöfn 2005 og doktorsprófi í tölfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Anna Helga var ráðin dósent í tölfræði við Háskóla Íslands 2018.
Í þættinum ræða Hildur og Anna Helga meðal annars:
- Hvernig stærðfræði vakti áhuga hennar strax á grunnskólaárunum
- Hvernig skiptinám til DTU í Kaupmannahöfn leiddi hana á braut tölfræðinnar og meistaranáms í hagnýttri stærðfræði og síðar kennslu við skólann
- Hvernig doktorsnám sem var blanda af tölfræði og kennslu reyndist draumastaðan
- Þróun og prófun kennslukerfisins tutor-web í stærðfræði og tölfræði
- Um rafmyntina SmileyCoin sem nemendur fá sem umbun inni í kennslukerfinu
- Þróun verkefnisins Education in a suitcase í Kenía þar sem kennslukerfið er notað og árangurinn sem hefur náðst og áhrifin sem það hefur haft á samfélagið
- Hvernig bálkakeðjutæknin er að greiða götu verkefnisins
- Um Stelpur diffra námsbúðirnar og mikilvægi þess að sýna fyrirmyndir
- Þá gríðarlegu þróun sem er í gagnavísindum og gevigreind
- Hvað það er dásamlegt að stunda hot yoga
Þátturinn er í boði Sýn, Advania og Geko
Bækur sem Anna Helga minnist á í viðtalinu:
The Alignment Problem: How Can Machines Learn Human Values?
Superintelligence: Paths, Dangers, Strategies
------------------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu! Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
------------------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Umsjón fyrir hönd Vertonet hefur Hildur Óskarsdóttir



