Heimsglugginn
Heimsglugginn
RÚV
„Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál
23 minutes Posted Jul 2, 2026 at 8:30 am.
0:00
23:28
Download MP3
Show notes
„Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í þinginu í gær og lét andstæðinga Verkamannaflokksins fá það óþvegið.
Í lokin var stuttlega minnst bresk-kanadíska söngvarans David Clayton-Thomas sem lést í síðustu viku. Hann öðlaðist heimsfrægð með hljómsveitinni Blood, Sweat & Tears. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda í kringum 1970. Við heyrðum Clayton-Thomas syngja You've Made Me So Very Happy.