Heimsglugginn
Heimsglugginn
RÚV
„...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“
22 minutes Posted Feb 26, 2026 at 8:30 am.
0:00
22:39
Download MP3
Show notes
Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu. Þarna var Politiken að fjalla um State of the Union-ræðu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þetta var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig við Boga Ágústsson um orð Finnlandsforseta um stríðið í Úkraínu sem sagði Pútín Rússlandsforseta ekki geta unnið stríðið en vildi heldur ekki semja um frið.
Þá var rætt um mikilvægar aukakosningar til breska þingsins í dag þar sem þrír flokkar geta unnið. Raving Monster Loony Party er ekki í þeim hópi en hlustendur fengu að heyra í frambjóðanda flokksins sem kallar sig Sir Oink A lot eða Sir Rýta mikið.