Heimsglugginn
Heimsglugginn
RÚV
Krísa gömlu flokkanna í Bretlandi
23 minutes Posted Jan 29, 2026 at 8:30 am.
0:00
23:35
Download MP3
Show notes
Kristján Guy Burgess, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi fréttaritari RÚV í Lundúnum, var gestur Heimsgluggans og ræddi við Boga Ágústsson um bresk stjórnmál. Hefðbundnu stjórnmálaflokkarnir tveir sem lengst af hafa farið með völd, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn, glíma báðir við tilvistarvanda. Ástæðan er uppgangur Reform, Umbótaflokksins, undir stjórn Nigels Farage. Reform nýtur mestra vinsælda breskra flokka samkvæmt nýjustu könnunum. Fjöldi málsmetandi fyrrverandi ráðherra hefur hlaupist á brott úr Íhaldsflokknum og gengið til liðs við Reform.