Show notes
Bogi Ágústsson ræddi við Einar Loga Vignisson, sem þekkir vel til í Portúgal, um úrslit þingkosninga þar um helgina. Einar Logi segir áframhaldandi minnihlutastjórn líklegasta kostinn því engin fylking fékk nægilegan stuðning til að geta myndað meirihlutastjórn.Í síðari hluta Heimgsluggans ræddu Bogi, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ástandið á Gaza. Stór hluti alþjóðasamfélagsins virðist vera að búinn að fá yfir sig nóg af framferði Ísraelsmanna.

