Show notes
Ásdís Hjálmsdóttir er lyfjafræðingur og fremsti spjótkastari Íslandssögunnar og keppt 3x á ÓL 2008, 2012 og 2016. Býr í Svíþjóð og er eigi kona einsömul. Hún talar um þjálfun á meðgöngu, hvernig er að lesa ummæli um sjálfa sig og hvort það sé sanngjarnt að ætlast til að það sé hluti af því að vera íþróttamaður að mynda þykkan skráp og mikilvægi hugarfarsins og sjónmynda þegar kemur að þjálfun. Ásdís rekur Afreksskólann þar sem hún gefur fólki verkfæri til að æfa hugarfarið fyrir hámarks árangur í sinni íþrótt.Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowicelandNú er hægt að fá æfingapakka Röggu Nagla á Hverslun.is@hverslun

