Harry Potter í Versló
Harry Potter í Versló
Ármann Halldórsson
Transfóbía Rowling - varnir gegn myrku öflunum
51 minutes Posted Oct 29, 2020 at 9:29 am.
0:00
51:33
Download MP3
Show notes

Í þessum þætti tökumst við á við álitamál tengd kennslu á Harry   Potter bókunum, og um þessar mundir rísa þar hæst deilur vegna vafasamrar   tjáningar höfundarins J.K. Rowling um transfólk. Til að hjálpa okkur að   skilja þessi erfiðu mál mætir María Helga Guðmundsdóttir í samtal.  María hefur   sterkan grun um að hún eigi heima í Slytherin. Hún myndi þó gera sitt besta   til að sannfæra flokkunarhattinn að senda sig í Hufflepuff, enda vistin með   besta gildismatið. María sem er þýðandi og   karatekennari, spændi í sig Harry Potter-bækurnar sem barn og unglingur.   Undanfarin ár hefur hún tekið virkan þátt í réttindabaráttu hinsegin fólks.   Hún var formaður Samtakanna ‘78 árin 2016-2019 og tók þátt í því að skrifa   frumvarp um kynrænt sjálfræði, sem varð að lögum á Alþingi vorið 2019. Stefið   í upphafi og enda þáttarins er úr laginu Óbreytt ástand af samnefndri plötu.