Golfstöðin
Golfstöðin
Bjarni Már Ólafsson
Bjarni Þór Hannesson -Yfirvallarstjórinn sem fræðir
1 hour 4 minutes Posted Apr 16, 2026 at 3:24 pm.
0:00
1:04:47
Download MP3
Show notes

Gestur hlaðvarpsins í dag heitir Bjarni Þór Hannesson og er yfirvallarstjóri í Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Hann er mörgum kylfingum kunnugur fyrir það að setja áhugaverð myndbönd inn á samfélagsmiðla er varða golfvallaumhirðu og ástand golfvallanna í Mosfellsbæ. Bjarni er sprenglærður golfvallafræðingur, hefur starfað á mörgum golfvöllum og virðist hafa nokkuð gaman að því að miðla þekkingu á öllu sem tengist grasumhirðu og almennri umsjón golfvalla.

Hann segir okkur frá mjög merkilegum nýjungum sem við munum sjá á golfvöllum landsins á næstu árum, segir okkur afhverju við sjáum ekki bakspuna á flötum hérlendis eins og þekkist erlendis, ástand valla eftir veturinn ofl.


Hljómsveitin Moses Hightower lánaði okkur upptökuaðstöðu sína að þessu sinni þar sem Golfstöðin var einfaldlega uppbókuð hvern einasta dag. Þess má geta að stef þáttarins er Remix af laginu Sjáum hvað setur með Moses Hightower en Daði Freyr remixaði það svona lista vel.


Þátturinn er í boði:

Hreppamjólk

GB ferðir

Matland

Hreysti