Góðar sögur
Góðar sögur
Heklan og Markaðsstofa Reykjaness
Helga Sigrún Harðardóttir
1 hour 30 minutes Posted Mar 23, 2021 at 11:00 am.
0:00
1:30:51
Download MP3
Show notes

Hún hefur komið víða við enda óhrædd við áskoranir hvort það er í námi eða starfi og hún var einu sinni pönkari.

Lífið hefur verið allskonar, sorgin knúði dyra þegar eiginmaður hennar lést eftir stutta baráttu við krabbamein og henni var aðeins gefið eitt barn en hún á einstakt samband við dóttur sína sem nú er sjálf orðin mamma.

Helga Sigrún Harðardóttir segir okkur frá því hvernig var að verða móðir 16 ára gömul, ævintýrinu í Fjörheimum, útvarpi Bros, einstaklega áhugasömum handavinnukenna  og þingstörfum í miðri búsáhaldabyltingu.