Show notes
Sextán liða úrslit Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, hófust í kvöld þar sem Menntaskólinn við Hamrahlíð, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Vesturlands og Menntaskólinn á Egilsstöðum tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum sem fara fram í sjónvarpi.Menntaskólinn á Egilsstöðum sigraði Fjölbrautaskólann við Ármúla 23-14.Fjölbrautaskóli Vesturlands sigraði Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu 11-8.Fjölbrautaskóli Suðurlands sigraði Menntaskólann í Kópavogi 28-15.Menntaskólinn við Hamrahlíð sigraði Menntaskólann á Akureyri 34-15.

