Show notes
Hjaltalín sópar til sín verðlaunum, Jóhanna Guðrún stelur senunni í Moskvu og Árstíðir syngja sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Söngfuglinn Nanna Bryndís Hilmarsdóttir kveður sér hljóðs og Margrét Kristín Sigurðardóttir fabúlerar í fjórða sinn á plötu. Helgi Hrafn Jónsson dundar sér í garðinum, það haustar hjá KK, Múm poppar sig upp og Leone Tinganelli er hálfur Íslendingur. Fjallabræður hefja upp raust sína, Pascal Pinon dustar rykið af gömlu ævintýri og Berndsen kemur fram á sjónarsviðið. Mannakorn syngur yfir sokkinni þjóðarskútu, Morðingjarnir syngja manvísu, Todmobile er 25 ára og Stefán Hilmarsson þakkar fyrir sig. EGÓ snýr aftur í byltingargír, Stuðmenn syngja um ruglið, grasið grænkar hjá Milljónamæringunum Langa Sela og Skuggunum er drullukalt og Baggalútur segir að þetta sé búið.Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Meðal viðmælenda í 38. þættinum, í fyrsta hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2009, eru Högni Egilsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Brynjar Leifsson, Jófríður Ákadóttir, Ásthildur Ákadóttir, Kristín Ylfa Hólmgrímsdóttir, Daníel Auðunsson, Gunnar Már Jakobsson, Ragnar Ólafsson, Bubbi Morthens, Halldór Gunnar Pálsson, Magnús Eiríksson, Davíð Berndsen og Haukur Viðar Alfreðsson.Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Hjaltalín - Suitcase ManMúm - Sweet ImpressionsHjaltalín - Sweet Impressions Hjaltalín - Feels Like SugarHjaltalín - Hooked On Chili Ingó - Undir regnboganumJóhanna Guðrún - Is It TrueFabúla - MonsterFabúla - With His Eyes ClosedNanna Bryndís (Songbird) - We’re Getting OlderNanna Bryndís (Songbird) - Blueberry MountainNanna Bryndís (Songbird) - Happy SongPascal Pinon - En þú varst ævintýrPascal Pinon - SandurHelgi Hrafn Jónsson - Digging Up A TreeKK - Þá kom haustiðSálin hans Jóns míns - Kominn tími til Ný Dönsk - Ég ætla að brosaÍvar Bjarklind - Nesti og nýir skórMúm - Sing AlongMúm - HullaballabalúÁrstíðir - Sunday MorningÁrstíðir - Með hallandi höfðiÁrstíðir - HeiðinÁrstíðir - Látum okkur sjá Egó - Kannski var bylting vorið 2009Egó - Í hjarta mér Egó - Fallegi lúserinn minnEgó - Eyjan grænaEgó - Vonin er vinan mín Todmobile - Ert ekkjað djókí mér?Stuðmenn - RugliðKarl Olgeirsson & Milljónamæringarnir - Grasið grænkar Leone Tinganelli - Hálfur Íslendingur Baggalútur - Þetta er búið Beggi Dan & Tryggvi Már Gunnarsson - Þegar þungar þrautir Langi Seli og skuggarnir - Ryk og sólLangi Seli og skuggarnir - DrullukaltFjallabræður - TröllasöngurFjallabræður - Minni FæreyingaFjallabræður ásamt Magnúsi Þór - Freyja Mannakorn - ÞjóðarskútanMannakorn - Elska þigBuff - Reyndu afturBerndsen - Lover in the darkBerndsen - Supertime Morðingjarnir - 81 (sé þig aldrei meir)Morðingjarnir - Manvísa Morðingjarnir - Sunnudagsmorgunn í ReykjavíkBróðir Svartúlfs - Gullfalleg útgáfa af forljótum náunga Stefán Hilmarsson - Þakka þér fyrir Stefán Hilmarsson - Aldrei einn á ferð

