Show notes
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.Magni fer í Rockstar Supernova, Hafdís Huld gerir það gott á Englandi, Pétur Ben sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu og Kaninn kveður. Ragnheiður Gröndal er með þér, Fabúla svífur um á beiku skýi, Ívar Bjarklind fer yfir hafið, Regína Ósk er í djúpum dal en Lára Rúnarsdóttir syngur Þögn. Hjaltalín vekur athygli eftir skapandi sumarstarf í Reykjavíkurborg, Siggi Pálma segir sögur, Ghostigital breytist í hljómsveit og Sykurmolarnir koma saman á ný, Sálin og Gospelkór Reykjavíkur rugla saman reytum sínum, Todmobile lokar sig inn í kastala og FM Belfast spilar á sínum fyrstu alvöru tónleikum. Sviðin jörð spilar og syngur lög til að skjóta sig við, Trabant er í útrásargír, Friðrik Ómar fer sóló, Jet Black Joe snýr aftur og Bogomil Font & Flís dansa calypso. Stebbi og Eyfi hlýja sér undir nokkrum notalegum ábreiðum og Máni Svavars stekkur inn á breska smáskífulistann með vinum sínum í Latabæ. Meðal viðmælenda í 32. þættinum, í seinni hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2006, eru Magni Ásgeirsson, Ívar Bjarklind, Högni Egilsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Freyr Eyjólfsson, Þorvaldur Gröndal, Ragnar Kjartansson, Sigtryggur Baldursson, Björk Guðmundsdóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Lára Rúnarsdóttir, Regína Ósk Óskarsdóttir, Pétur Þór Benediktsson, Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Arnalds, Hafdís Huld Þrastardóttir, Þór Freysson, Ingólfur Þórarinsson, Árni Rúnar Hlöðversson, Árni Vilhjálmsson, Stefán Hilmarsson, Snorri Helgason, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Benedikt Hermann Hermannsson, Karl Henry Hákonarson, Haukur Magnússon og Máni Svavarsson.Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Á Móti Sól - Hvar sem ég ferMagni - Plush (Live - Rockstar Supernova)Magni - I alone (Live - Rockstar Supernova)Magni - Dolphins Cry (Live - Laugardalshöll)Ívar Bjarklind - DreggjarÍvar Bjarklind - Yfir hafiðHjaltalín - Mamma kveikir kertaljósHjaltalín - The Trees Don’t Like The SmokeSálin hans Jóns míns & Gospelkór Reykjavíkur - Þú trúir þvíSviðin jörð - Allt sem ég hef misst Sviðin jörð - Vorið sem ástin dó Friðrik Ómar og Páll Óskar - Þessar dyrSkakkamanage - None SmokerTrabant - ONE (Remix)Bogomil Font & Flís - Veðurfræðingar ljúgaBogomil Font & Flís - Eat Your CarGhostdigital - Not CleanSykurmolarnir - AmmæliSykurmolarnir - RegínaDimma - Mama (Sykurmolaábreiðukeppni Rásar 2)Fabúla - Pink SkyFabúla - SkateboardSiggi Pálma - Blue Eyes Lára Rúnars - Þúsund fjöllLára Rúnars & Damien Rice - WhyRegína Ósk - Ljósin komuJet Black Joe - Full CirclePétur Ben - Wine For My WeaknessPétur Ben - Pack Your BagsPétur Ben - Something RadicalPétur Ben - White TigerTodmobile - Ljósið ert þúTodmobile - Lestin Hafdís Huld - Ski JumperHafdís Huld - TomokoHafdís Huld - Diamonds On My BellySnorri Snorrason - Allt sem ég á (Idol Stjörnuleit)Ingó Idol - SwayIngó - Týndur Rúnar Júlíusson - Söngur villiandarinnarSupergrass - Pumping on Your Stereo (Live - Reykjavík Trópík)Pink Floyd - TimeKaiser Chiefs - Everyday I Love You Less & Less (Live - Airwaves)FM Belfast - PumpFM Belfast - SynthiaRagnheiður Gröndal - Með þérRagnheiður Gröndal - Gef að stjörnunar skíniSelma og Hansa - Taktu mig meðStefán Hlimars & Eyfi - Góða ferðStefán Hilmars & Eyfi - Við hafið svo bláttSprengjuhöllin - Can’t danceSprengjuhöllin - Tímarnir okkarBenni Hemm Hemm - Ég á bátKalli - It’s overReykjavík - Advanced Dungeons & DragonsReykjavík - All Those Beautiful BoysÆla - PirringurLatibær - Bing BangHalli Reynis - Leiðin er löngHalli Reynis - Sveitin mín heitir BreiðholtHalli Reynis - Draumalandið mittBjörgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands - Skýið

