Show notes
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Sigur Rós syngur á vonlensku og Mugison fæðist sem söngvari á karaókíbar í Malasíu. Írafársrússíbaninn þýtur áfram, Sálin treður upp með Melabandinu og Urður gengur í Gus Gus. Vandræðaunglingurinn Þórunn Antónía lýkur þriggja ára tónlistarnámi hjá föður sínum, Magnúsi Þór Sigmundssyni. Útrás Leaves fær fljúgandi start, Fídel gefur út plötu og geispar golunni en Land og synir fá Happy Endings. Orri Harðar fellir tár, Brain Police finnur Jenna og Buff finnur glerbrot í vaselíninu. Græni ormurinn skríður út úr bílskúr á Skipaskaga, hárin rísa á höfði Ampopdúettsins en það þarf fólk eins og Rúnar Júl fyrir fólk eins og þig og mig.Meðal viðmælenda í 23. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2002 er tekið fyrir, eru Birgitta Haukdal, Vignir Snær Vigfússon, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Ólafsson, Örn Elías Guðmundsson, Birgir Hilmarsson, Georg Hólm, Hreimur Örn Heimisson, Magnús Þór Sigmundsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Orri Harðarson, Arnar Guðjónsson og Jón Björn Ríkharðsson. Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Írafár - Ég sjálf/Stórir hringir/Írafár - Ég sjálfSálin hans Jóns míns - Þú fullkomnar migSálin & Sinfó - Upplifun/VatniðGus Gus - Dance you Down/DavidSilfurfálkinn - Turn your lights downRúnar Júlíusson - Gott er að gefa/Það þarf fólk eins og þigNýdönsk - Fagurt fés/FlugvélarMugison - Sea Y/Ear/Poke A PalAmpop - Made For Market/SociopathWorm Is Green - The Robot Has Got The Blues/Love Will Tear Us ApartSigur Rós - Lag nr. 1 (Vaka)/Lag nr. 4 (Njósnavélin)Land & synir - Summer/Smile/IfMegas - Vertu mér samferða inní draumalandið amma/Ungfrú ÁlísÞórunn Antonía - Play Me/The Sun Is Shining/Zebra Butterfly Orri Harðarson - Ást/FreistingLeaves - Catch/RaceFídel - Who Gives A Rat/The Great SkuaBrain Police - Jacussy SuzyHljómsveitin ÉG - Geitungarnir mínirRúnk - Klapparstígur/Atlavík 84Buff - Gringó/Glerbrot

