Show notes
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Ágætis byrjun hjá Sigur Rós vekur áhuga tónlistaráhugamanna út um allan heim. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður til og Quarashi heillar ameríska bransakarla. Emilíana Torrini gerir plötu fyrir erlendan markað, Bellatrix og Coldplay túra saman um Bretlandseyjar en Selma Björnsdóttir er All Out Of Luck og lendir í öðru sæti í Eurovision. Hljómsveitn Maus fellur að eyrum hlustenda, KK og Magnús eru kóngar í einn dag og Sálin hans Jóns míns snýr aftur, órafmögnuð. Ensími vinnur með Steve Albini, Gus Gus liðum fer fækkandi en Páll Óskar er Deep Inside og í djúpum skít fjárhagslega. Skítamórall rúntar á Rammsteinrútunni og Mínus rústar Músíktilraunum.Meðal viðmælenda í tuttugasta þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 1999 er tekið fyrir, eru Emilíana Torrini, Birgir Örn Steinarsson, Elíza Newman, Haraldur Gíslason, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Selma Björnsdóttir, Hreimur Örn Heimisson, Friðþjófur Sigurðsson, Árni Matthíasson, Kristinn Sæmundsson, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Hrafn Thoroddsen, Franz Gunnarsson, Arnþór Örlygsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Baldur Stefánsson, Sölvi Blöndal, Einar Ágúst Víðisson, Gunnar Ólason, Herbert Viðarsson, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum.Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.Lagalisti:Emilíana Torrini - To Be Free/Easy/Unemployed In Summertime Maus - Strengir/Kerfisbundin þrá/Allt sem þú lest er lygiBellatrix - Jedi Wannabe Silt - Tracing God Stuðmenn - Komdu með Selma Björnsdóttir - All Out Of Luck/Hit Girl Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska/Neiðarrúmba/Fílarðu mig?Land og synir?Lending 407/ÖrmagnaSigur Rós - Svefn-g-englar/Ný batterý/Viðrar vel til loftárasa KK & Maggi Eiríks - Seinna Seinna/Kóngur einn dag Sálin hans Jóns míns - Ég er kominn/Orginal/Okkar nótt Tvíhöfði - Ég heiti TvíhöfðiBubbi - Það þarf að myndana/Góðar stelpur fara til himna Ensími - Böstaður í tollinum/Vínrauðvín Páll Óskar - Deep Inside/Make Up Your Mind Stjörnukisi - Flottur sófi Gus Gus - Starlovers/Ladyshave/V.I.P. Quarashi - Model Citizen/Tarfur/Stick?em Up Jagúar - Theme for Miguel Skítamórall - Fljúgum áfram/Einn með þér Ellý Vilhjálms - Vegir liggja til allra átta Mínus - Svínsköpun/Stark Art of Desire SSSól - Þú ert ekkert betri en ég

