Bylgjan
Bylgjan
Bylgjan
Sprengisandur 19.07.2026 - Viðtöl þáttarins
1 hour 33 minutes Posted Jul 19, 2026 at 12:13 pm.
0:00
1:33:43
Download MP3
Show notes
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Ferðaþjónusta/skattheimtaJóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAFFerðaþjónustan er ósátt við ríksstjórnina, ósátt við nýja skatta og þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur í atvinnumálum. Þrátt fyrir samtal milli greinar og atvinnuvegaráðuneytisins telur ferðaþjónustan alltof langt gengið í innleiðingu nýrra skatta. 
 
Loftslagsmál/alþjóðasamningarBjarni Már Magnússon, lögmaðurFjallað um ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins í Haag um skyldur ríkja í loftslagsmálum, álit sem þykir marka tímamót vegna þess hversu afdráttarlaus það er um ábyrgð ríkja í þessum málaflokki og skyldur þeirra, skyldur sem jafnvel höggva í þjóðarrétt. 
EvrópumálBirgir Ármannsson, fyrrverandi fors. AlþingisDagbjört Hákonardóttir, alþingismaður
Framhald umræðu um Evrópumál, afsal eða framsal fullveldis til Evrópusambandsins, nauðsynlegar stjórnarskrárbreytingar ef til inngöngu kemur og útfærslu þeirra. 
Bretland/stjórnmálErlingur Erlingsson, sagnfræðingurErlingur sem búsettur eru í Bretlandi, fer yfir nýjustu hræringar í breskum stjórnmálum, nýr forsætisráðherra tekur við 20. júlí, sá áttundi á 10 árum, þessi breyting undirstrikar enn og aftur ólguna í breskum stjórnmálum.