Bylgjan
Bylgjan
Bylgjan
Sprengisandur 14.06.2026 - Viðtöl þáttarins
1 hour 31 minutes Posted Jun 14, 2026 at 12:07 pm.
0:00
1:31:47
Download MP3
Show notes
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
SagnfræðiGuðmundur Hálfdánarson, prófessor emeritusGuðmundur er nú að láta af störfum við HÍ, orðinn 70 ára og fer yfir ferilinn og helstu hugðarefni, sem einkennt hafa farsælan feril við sagnfræðirannsóknir, sérstaklega hugmyndir um þjóð, þjóðerni, fullveldi og sjálfstæði. 
Efnahagsmál/evrumálJón Helgi Egilsson dr. í hagfræðiJón sem er fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, ræðir um upptöku evru fyrir Íslendinga og gagnrýnir þá hugmynd harðlega. Hann telur að upptaka evru myndi leiða atvinnuleysi yfir Íslendinga og kostnaðurinn sé því mun meiri en ábati kynni að vera. 
Menntamál Þórdís Sigurðardóttir, forstjóri MenntamálastofnunarÞórdís ræðir ýmsa þá gagnrýni sem fram hefur komið á menntakerfið hér á landi, m.a. vanrækslu í námsefnisgerð, framlög til skólakerfisins, samræmingu einkunnagjafar á milli skóla og fleira en einnig framfarir sem nýr námsmatsferill á að hafa í för með sér. 
VelferðarmálKolbrún Áslaugar BaldursdóttirKolbrún ræðir málefni barna, m.a. brottfararstöð hælisleitenda og gagnrýni á hana, þingsályktunartillögu um farsæld barna og framkvæmd velferðarlaga barna af hálfu Ríkisendurskoðunar.