Show notes
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.Í þessum þætti:Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður EflingarRætt við Sólveigu Önnu um vinnumarkaðinn, væntingar eftir sveitarstjórnarkosningar, um afstöðuna til ESB og réttinda launafólks innan Evrópusambandsins.Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SARætt við Bjarna um fundaferð SA um landið, um sameiginlega baráttu gegn verðbólgu og þau tæki sem hægt er að beita til að ná tökum á krónískum verðhækkunum á Íslandi. Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingurÞorsteinn hefur skoðað gjaldmiðlamál um áratuga skeið - hvert er hans mat á stöðunní dag, hentar Íslendingum betur að hafa sjálfstæða mynt og búa við sveiflur eða er eftirsóknarvert að taka upp Evru, hverjar yrðu breytingarnar?Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður, SamfylkingBryndís Haraldsdóttir, alþingismaður, SjálfstæðisflokkurÞjóðaratkvæði um framhald viðræðna við ESB verður 29. ágúst, en hvað gerist í millitíðinni, hvaða forsendur þarf að leggja fram fyrir já-i og hvaða áhrif mun það hafa ef Íslendingar hafna því að halda þessum viðræðum áfram?



