Bylgjan
Bylgjan
Bylgjan
Sprengisandur 10.05.2026 - Viðtöl þáttarins
1 hour 31 minutes Posted May 10, 2026 at 12:13 pm.
0:00
1:31:50
Download MP3
Show notes
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Læsi á ÍslandiSigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla ÍslandsSigríður hefur rannsakað þróun læsis á Íslandi um margra ára skeið. Rannsóknir sýna ótvírætt að læsi hefur hrakað gífurlega á síðustu árum, hvaða áhrif hefur það og hvað er til ráða?
Stjórnmál/EvrópumálPawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar alþingisGuðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaðurStjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að hafa átt fullkomlega óviðeigandi samráð við ESB um tímasetningar og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna, kallar það leynimakk og undanbrögð. Hvað er satt og rétt?
Landeyjahöfn Fannar Gíslason, forstöðumaður Hafnadeildar Vegagerðarinnar Eitt umdeildasta mannvirki Íslandssögunnar er enn ekki í fullri notkun, 16 árum eftir að það var opnað. Hvað þarf í raun að gera til þess að tryggja snurðulausu starfsemi Landeyjahafnar, er það í raun og veru hægt?
Atvinnulíf/skattamálSigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Ný úttekt leiðir í ljós að fasteignaskattar sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði hafa hækkað um 50% að raungildi síðustu tíu árin. Hafa stjórnmálaflokkar lagt fram raunhæfar tillögur til úrbóta í húsnæðismálum í yfirstandandi kosningabaráttu?