Show notes
Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger eru tvær af stærstu hasarstjörnum kvikmyndasögunnar. Þeir hafa báðir leikið í mörgum hasarmyndum sem eru af flestum taldar klassískar myndir í hasargeiranum. Á tímabili var mikil keppni á milli þeirra og Hafsteini fannst því tilvalin hugmynd að láta nokkrar af þeirra myndum keppa sín á milli. Hafsteinn fékk til sín Ísrael og Brynjólf til að hjálpa sér að finna út hvort Stallone eða Schwarzenegger sé með betri myndir. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Cliffhanger, Eraser, True Lies, Rambo II, Kindergarten Cop, Demolition Man, Tango & Cash og margt fleira.



