Show notes
Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2024. Strákarnir fara vel yfir árið en ræða helst vinsælustu kvikmyndirnar og sjónvarpsseríurnar á árinu. Í þættinum ræða þeir meðal annars stjörnuleikinn sem Naomi Scott sýnir í Smile 2, hvort Paul Mescal nái sömu hæðum í Gladiator II eins og Russell Crowe gerði í Gladiator, hversu miklum tíma þau eyða í sandinum í Dune II, hvort Furiosa hafi verið vel heppnuð, Venom og hversu lélegur þessi Sony/Marvel heimur er, hvort Deadpool & Wolverine sé lélegasta Deadpool myndin, hvort það sé erfiðara að búa til kvikmyndastjörnur í dag, hver staðan er á kvikmyndaiðnaðinum í dag og margt, margt fleira.



