Show notes
Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Hann hefur einnig gert sína fyrstu stuttmynd, The Roots of You, sem hefur fengið frábærar viðtökur. Hallvarður er grjótharður Harry Potter aðdáandi og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þessa merkilegu seríu. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir fyrstu fjórar Harry Potter myndirnar.



