Bíóblaður
Bíóblaður
Hafsteinn Sæmundsson
#256 Bíóspjall með Bomarz
2 hour 22 minutes Posted Sep 27, 2023 at 7:00 am.
0:00
2:22:32
Download MP3
Show notes

Bjarki Ómarsson, betur þekktur sem Bomarz, er tónlistarmaður og upptökustjóri. Bomarz er einnig mikill kvikmyndaáhugamaður og hann kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt spjall um bíómyndir og sjónvarpsþætti.

 

Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Christopher Nolan sé ofmetinn leikstjóri, hversu leiðinleg Oppenheimer er, hvort James Bond eigi að vera ljóshærður, af hverju Batman myndirnar gerast alltaf í nútímanum, hvort Friends sé betri sería en Seinfeld, hvernig poppbransinn hefur þróast, hversu mikið Bomarz elskar 80’s myndir og margt, margt fleira.

 

Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.