Show notes
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —
Ofurhetjusérfræðingarnir Gummi Sósa, Raggi Ólafs, Fannar Gilberts og Ari Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera. Hafsteinn setti saman fimm bardaga þar sem DC karakter keppir við Marvel karakter. Strákarnir reyna síðan í sameiningu að finna út hvor myndi vinna bardagann.
Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Ultron gæti rústað Brainiac, hvort The Wasp kæmist inn í heilann á Poison Ivy, hvernig Spider-Man myndi ganga á móti Clayface og Cyborg, hvort Aquaman þyrfti aðstoð við að drepa Namor og margt, margt fleira.
Þátturinn er 93 mínútur.
Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is



