Bíóblaður
Bíóblaður
Hafsteinn Sæmundsson
#202 Topp 10 með Snjólaugu Lúðvíks
1 hour 51 minutes Posted Aug 31, 2022 at 5:00 am.
0:00
1:51:21
Download MP3
Show notes

Snjólaug Lúðvíksdóttir er handritshöfundur og uppistandari. Snjólaug hefur meðal annars skrifað kvikmyndina Saumaklúbburinn ásamt Göggu Jónsdóttur og hún var partur af handritateyminu á bakvið Stellu Blómkvist þættina. Snjólaug kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista.

 

Í þættinum ræða þau hvort að Snjólaug væri til í að horfa á alvöru Truman Show þætti, hversu fyndin The Lobster er, hversu mögnuð Arrival er, hvernig Stella í orlofi var á undan sinni tíð, hvað einkennir góð samtöl í leiknu efni og margt, margt fleira.

 

Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.