Bíóblaður
Bíóblaður
Hafsteinn Sæmundsson
#173 Berdreymi með Viktori Benóný
1 hour 35 minutes Posted Apr 22, 2022 at 11:49 am.
0:00
1:35:41
Download MP3
Show notes

Viktor Benóný Benediktsson er 16 ára gamall leikari sem sló í gegn sem Ívar í kvikmyndinni Víti í Vestmannaeyjum. Berdreymi, í leikstjórn Guðmundar Arnar Guðmundssonar, kemur í kvikmyndahús í dag en þar leikur Viktor unglinginn Konna. Viktor hefur fengið frábæra dóma fyrir sinn leik og Hafsteini fannst því upplagt að spjalla við þennan unga og spennandi leikara.

 

Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu lengi Viktor og strákarnir voru að undirbúa sig fyrir myndina, hversu langt Viktor stefnir í leiklistinni, hans ást á Marvel myndum og margt fleira.

 

Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Síríus.