Show notes
Fyrirtækjaeigandinn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Bjarni Thor, snýr aftur og í þetta skipti ræða strákarnir uppáhalds leikstjórana sína.
Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort það sé pínu leiðinlegt að James Cameron sé fastur í Avatar heimi, hvort Steven Spielberg sé betri leikstjóri en Stanley Kubrick, hvort Miami Vice sé skemmtilegri en Public Enemies, hversu frábær Pulp Fiction er og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.



