Alltaf sama platan
Alltaf sama platan
Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson
04. Alltaf sama platan - Powerage (Leifur Björnsson & Benedikt Reynisson)
1 hour 54 minutes Posted Apr 25, 2021 at 8:23 am.
0:00
1:54:48
Download MP3
Show notes

Karlarnir fara heldjúpt í fjórðu plötu AC/DC. Powerage kom út í maí 1978 sem er ekki í frásögu færandi nema fyrir þá staðreynd að þetta er „stundum“ eftirlætis plata Tarfsins. Þar af leiðandi tiplar Birkir í kringum plötuna eins og köttur í kring um heitan graut. Aftur hefur hljómsveitin tekið stökk nær himnafestingunum og endalaust til að bíta á og brenna. 
Það færðist mikið fjör í leikinn í síðasta þætti og ætlaði allt um koll að keyra.  Hér er rýnt í fjórðu hljóðversútgáfu AC/DC, Powerage frá árinu 1978, en að mati þeirra félaga hafði hljómsveitin tekið stórt stökk fram á við á milli Dirty Deeds og Let There Be Rock. Stóra spurningin er hvort það sama verði uppi á teningnum hér.

Tónlistarþúsundþjalasmiðurinn Leifur Björnsson stingur inn höfðinu og skilur þáttastjórnendur eftir í reyknum. Annar gestur, Benedikt Reynisson (Benni Karate, Benni Skáti, Benni Fantastic, McBennister) fylgir í kjölfarið og talar beint frá hjartanu og býður þannig hlustendum á ferðalag um tónlistaræsku sína.

Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið heimasvæðið þeirra á netinu. Fylgið Luxor á samfélagsmiðlum.
Alltaf sama platan er framleiðsla Snæfugls.